Færsluflokkur: Formúla 1

Evran að skríða í 100 kall

Sæææælll

Viltu ræða það eitthvað

Dollarinn að skríða í 70 kr vantar eina krónu og nokkra aura upp á það

Bensín verð upp, matur upp, Föt upp, græjur bílar og dót upp!!

Laun niður, allavega standa þau í stað og púkinn á fjósveggnum fitnar og fitnar.

Svei og aftur svei.

 


Jean Todd og Schumi árið 50 fyrir krist!!

Sá Ástríkur og Ólempúleikarnir í dagmeð tveimur dætrum mínum í dag.

Það var slatti af tvíræðum bröndurum í henni og temmilega mikið grín gert að F1 :)

Scumacher tók þá í keppni á rómverskum hestakerrum í myndinni, þegar hann kemur með kerruna í pit stopp heyrist í tveimur í myndinni;hva, var hann ekki búinn með PIT stoppin? -Kannski það sé búið að breyta reglunum.Grin

alveg ágætismynd fyrir, pabbana líka


Fárviðri

Alveg er þetta merkilegt, ég bý í frekar hárri blokk 10 hæðir einar

Nú rokinu þá gæti ég svarið að húsið sveiflast eins og mófó!! Ég sit og horfi á Imbann  og stóllinn sem ég sit sveiflast og titrar öðru hvoru eins og róni á skjálftavaktinni.

Ef ég vissi ekki betur þá mætti búast við að kofinn fjúki um koll í kvöld.

Ég læt heyra í mér á morgun ef ég vakna þá:)

einn loft hræddur


Britney Spears- Alveg stórmerkileg

Alveg er þetta merkilegt...

  

152775A

Alveg er ég viss um að þú ert forvitinn.

Sjáumst


F1 2007 gert upp í hreyfimynd

Sæll

Viltu ræða þetta http://www.formula1.com/ eitthvað?

Smella á Play video. Bara svalt.

 

Svo tekur Raikkonen þetta í ár. Ferrari vinnur tvöfalt

og Massa bakkar sinn mann upp og tekur annað sætið í stigakeppninni.

 Og Alonso klárar sjöundi


Britney og fjölmiðlar

Hvernig væri að hætta að flytja fréttir af Britney Spears, og þeim sem eru tengdir henni?
mbl.is Lutfi sagður hafa deyft Britney með lyfjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgin að kaupa hús á Laug(r)avegi

Hafiði pælt í því hvað þeir sem áttu húsin þarna á Laugarvegi græddu á þessum tveim húsum. og það korteri áður en átti að friða kofaræksnin, og við borgarar þessarar borgar fáum að blæða fyrir þetta rugl.

Ég las einhversstaðar að það hefði átt að friða húsin hvort eð var. Afhverju lá svona á að greiða fyrir húsin?

Mér finnst að það ætti einhver að rannsaka þessi mál og tengsl mannanna sem áttu húsin við Laugaveg, og labba nú um með 560 millljón kúlur í vasanum, við meiri hluta borgarstjórnar sem tók þá ákvörðun að greiða fyrir húsin, svona rétt áður en ákvörðun hvort húsin yrðu friðuð eða ekki.

Hvað lá svona mikið á? ég bara spyr, eins og fávís kona hugsar.

Svindl og svínarí

 


Formúlan í ár??

Einhverstaðar heyrði ég að Sýn yrði með beinu útsendgarnar frá Formúlunni í opinni dagskrá

Er einhver sem getur staðfest eða skotið það niður fyrir mig.


Clooney og Sameinuðu Þjóðirnar

Georg Clooney að láta gott af sér leiða

http://www.bbc.co.uk/mediaselector/check/player/nol/newsid_7220000/newsid_7220700?redirect=7220735.stm&news=1&nbram=1&nbwm=1&bbwm=1&bbram=1&asb=1

 

Þetta er bara gott mál þegar hægt er að nota stjörnustatusinn til að vekja máls á hlutum.

Georg að vekja athygli á málum í Darfur


Þunglyndi og Spaugstofan

Það að lenda í mótlæti eða niðursveiflu ER ekki það sama og að lenda í "góðu", með öfugum formerkjum þó, þunglyndi.

Þetta er með verstu fyrirbærum sem fyrirfinnast, meðal annars af því að það sést ekki utan á fólki að það sé veikt.

Athafnamesta fólk verður að duglittlum hróum í verstu köstunum. Þorir jafnvel ekki út á meðal fólks jafnvel tilhugsun um fjölskylduboð verður að hreinasta víti í huga sjúklungsins.    

Mikið hefur verið skrifað um þátt Spaugstofunnar um síðustu helgi. Mér fannst þátturinn góður, nota bene. Einhverjum fannst þetta vera aðför að Ólafi borgarstjóra. En svo kom téður ólafur fram í sjónvarpi og vildi ekki tala um geðsjúkdóm þegar talið barst að veikindum hans sjálfs, heldur talaði hann um andlegt mótlæti. Kommon, hann var frá í marga mánuði, andlegt mótlæti, my a**!!

Og ekki gerði hann geðsjúkum neinn greiða með því að setja sig ekki á sama stall og þeir. Nei nei ég er ekki þunglyndur, ég er hins vegar í smá andlegu mótlæti.

Gangi honum vel í nýju starfi. Megi andlegi meðbyrinn(force) vera með honum.

Góðar stundir 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband