Færsluflokkur: Formúla 1

Spennandi ár framundan

diapo_117

Jæja Ferrari búið að frumsýna nýja bílinn

fleiri myndir hér: http://en.f1-live.com/f1/en/photos/2008/index_teams.shtml

Og svo allir saman ÁFRAM FERRARI

Grin


Skaupið margumtalaða

Fyrir mína parta þá var skaupið alveg ágæt

 

Ég hló að flestu sem var á boðstólum þar á bæ

Árið og Formúlan

Heil og sæl

Gleðilegt nýtt ár.!!Wizard

 

73 dagar í fyrsta mót ársins. það fer fram í Melbourne, Ástralíu 16 mars.

Fyrsta spá  um úrslit

Byggð algjörlega á tilfinningum og óraunsæi

1. Kimi Raikkonen (ræsir 3.)

2. Felipe Massa

3. David Coulthard

Þess bera að geta að Alonso ræsir af ráspól en sprengir bílinn fljótlega eftir þjónustuhlé.

Smá drami, viltu ræða það eitthvað?

Góðar stundir

 


NiðurSkurður!!!

Alveg er þetta merkilegt. Aldrei heyrir maður að það þurfi að skera niður í Utanríkisþjónustunni!!!

Nei skerum niður þar sem ekki er þörf á peningum, hjá Sjúkum, Öldruðum og Öryrkjum.

Það er kominn tími til að við stoppum aðeins og forgangsröðum.

það hefur verið sagt að við þurfum sendiráð hingað og þangað til að styðja við íslensk fyrirtæki í útrás!?!? Bull!!

Og á meðan er fólk sent heim af hjúkrunarheimililum og sjúkrahúsum unnvörpum af því að það er ekki til peningur til að sinna þeim.

Ja svei

Hafið það gott um áramótin.


mbl.is Þarf að hagræða um 600-700 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg dæmalaus þessi runni(BUSH)

Frétt á textavarpi. Meira hvað hann er gáfaður forseti bandaríkjana, og með forgangsröðunina alveg á hreinu.

Kertavaka

Í kvöld, mánudagskvöldið 3. desember, klukkan 19:00, skulum við öll taka okkur saman og kveikja á friðar(úti)kerti fyrir Kristin Veigar litla, guttagullið sem lést í gær eftir að keyrt var á hann á föstudaginn. Um leið og við kveikjum á kertinu skulum við hugsa hlýtt til syrgjandi fjölskyldu hans, ættingja og vina, sem nú ganga þung skref. Við skulum líka hugsa til ökumannsins og vona að hann geti fundið jafnvægi í sína tilveru.

Látið orðið berast.

Friðarljós í minningu
† Kristins Veigars †
mánudaginn 3. des. klukkan 19:00

Næturfundir hvað

Er ekki bara kominn tími til að Alþingi verði rekið eins og stofnun eða fyrirtæki, ekki grunnskóli.

Það er löngu kominn tími á að þessir háu herrar á Alþingi fari að vinna fyrir kaupinu sínu og vinni allt árið. Að Alþingi loki bara yfir sumarið er brandari, og meðal annars er ástæðan fyrir þessu næturbrölti svo fá þeir 2-3 vikur í frí yfir jól líka.

Ég væri sáttari við að gefa þeim 4-5 vikur í sumarfrí. Öll venjuleg fyrir tæki geta gengið þó að lykilmannskapur fari í frí. Það kemur maður í mannsstað!!

hey Kommon

Gera eitthvað í þessu, þarf að ræða þetta eitthvað frekar?!!! 


mbl.is Næturfundir ættu ekki að þekkjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterk fyrir sögn

Það er allt í lagi að kalla hlutina réttum nöfnum, hefði samt verið meiri húmor í að skrifa fréttina;

Árasum á veggi fjölgar! 

 

Gangið hægt um gleðinnar dyr 


mbl.is Hrottar segjast hafa kýlt í vegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

að hryggbrjóta

Ég er kannski svona vitlaus, en  ég hef bara heyrt talað um hryggbrotið í tengslum við bónorð.

Frekar klén blaðamennska finnst mér að tengja höfnun Simons á stelpunni við bónorð og hryggbrot.

Annars væri gaman að heyra um hvaðan þetta orðatiltæki er komið. 


mbl.is Simon Cowell sveik sex ára gamla stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tinni og félagar

Mig minnir að selurinn hafi verið bannaður í Þýskalandi í kringum heimstyrjaldirnar 2. bókin var víst of mikil ádeila á Nasista.

Það er ljótt til þess að hugsa að við fáum ekki að lesa sem mest til að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir.

kv.

Steinþór


mbl.is Tinni fjarlægður úr barnabókahillum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband