Þreytt lítil kona

Mamma ég er svöng , kvað við um sex leitið í gærkvöld. Já ég er að fara að elda sagði mamman.

20 mínutum síðar fór lítil stúlka aðeins út með vinkonu sinni. Maturinn að verða klár, svo kom matur og allir kláruðu að borða, nema sú stutta.

Mamman fór í bío með þessari 15 ára. Pappinn(Ég) varð eftir til ap gæta bús og barna, enda lúinn eftir langar vökur um helgina. sú stutta hringdi dyra bjöllunni um 20 mínútur yfir 8, erindið í það skiptið var að fá að vera lengur úti. ég sagði henni að koma inn, klukkan væri orðin svo margt.

Org, öskur og grát. Hún vildi vera lengur úti, Mamma hennar gaf leyfi á að vera lengur úti 40 mínútum fyrr þegar hún fór af stað í bíoið. Greinilega ekki nóg að vera úti í rúma tvo tíma.

Það tók 15 mínútur að róa hana niður til að hún fengist til að borða, En þá var líka borðað.

Svo bursta tennur og upp í rúma að æfa sig að lesa. Það var þreytt lítil kona sem sofnaði langt gengið í tíu í gærkveldi.

 Mikið geta Pabbar verið ósanngjarnirWoundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband